HomeFréttirKR eru meistarar meistaranna 2015

KR eru meistarar meistaranna 2015

KR-ingar eru nýkrýndir Meistarar meistaranna en þeir lögðu Stjörnuna 90 – 86 í gífurlega jöfnum leik í Hólminum í dag. Atkvæðamestir hjá KR í dag voru Mike Craion og Brynjar Þór Björnson, báðir með 25 stig. Hjá Stjörnunni var Justin Shouse stigahæstur með 18 stig og Tómas Heiðar Tómasson fylgdi með 17 stig.

 

Það var að sjálfsögðu hart barist þegar Íslandsmeistarar KR mættu bikarmeisturum Stjörnunnar. Leikurinn var virkilega jafn og spennandi eins og sést glöggt ef stigaskor hvers leikhluta er skoðað. Ljóst er að EuroBasket hefur tekið vel á hjá landsliðsmönnum en Helgi Magnússon og Ægir Þór Steinarsson voru báðir í hversdagsfötunum á bekk KR-inga. 

Því miður var stattið sem tekið var niður í Hólminum ekki að skila sér inn á KKÍ heimasíðuna en Karfan gerði sitt besta í að uppfæra fólk í beinni af hliðarlínunni. Það er þó komið inn núna og geta áhugasamir skoðað það nánar hér.

 

Stjörnumenn fóru betur af stað en KR liðið var fljótt að taka við sér og svara fyrir sig. Stjarnan átti í vandræðum með villur allan leikinn og þegar fyrsta leikhluta var lokið voru þrír leikmenn komnir með 2 villur þeim megin. Darri Hilmarsson virtist ætla eiga síðasta orð leiksins með þriggja stiga körfu en Al'lonzo Coleman svaraði með stæl þegar hann setti sjálfur þriggja stiga flautukörfu til að jafna leikinn.

 

Í öðrum leikhluta fóru KR-ingar af stað með látum og náðu 7-0 áhlaupi á fyrstu 90 sekúndunum. Stjarnan lét það ekki á sig fá og svöruðu með sínu eigin 7-0 áhlaupi og jöfnuðu leikinn, 29 – 29. Leikhlutinn spilaðist svo jafnt þar en röndóttir gengu þó inn í klefa í hálfleik með 4 stiga forystu.

 

 

Þriðji leikhluti fór af stað með látum og baráttu en á fyrstu mínútunni hafði Pavel Ermolinskij tekist að næla sér í 2 villur. Mike Craion virtist svo ætla sjá einn um það að halda villuvandræðum Stjörnumanna gangandi en hann fékk 2 villur dæmdar á Al'lonzo Coleman með tæplega mínútu millibili. Coleman fékk þá hvíld á bekknum enda kominn með 4 villur og 8 mínútur enn eftir af leikhlutanum. Villurnar voru virkilega að setja mark sitt á leikinn en það voru reyndar KR-ingar sem brutu meira af sér í þessum leikhluta. Fyrirliða KR tókst að næla sér í tæknivillu fyrir óvinalega meðferð á körfuboltanum eftir að Tómas Heiðar hafði brotið á honum í hraðaupphlaupi. Annars spilaðist leikhlutinn nokkuð jafnt og fór 21 – 22 fyrir Stjörnunni en KR-ingar enn 3 stigum yfir í heildina, 68 – 65.

 

Fjórði leikhluti fór vel af stað hjá báðum liðum en menn voru farnir að láta dómarana heyra það af báðum endum vallarins. Coleman var stimplaður aftur inn í leikinn þegar 1:40 voru búnar af leikhlutanum en það tók Craion þó ekki nema 2 mínútur að fá ruðninginn dæmdan á hann enn aftur. Þar með var Coleman út úr leiknum með 5 villur og enn tæpar 6 mínútur eftir af leiktíma. Enn eitt 7-0 áhlaupið kom Stjörnumönnum vel en þeir jöfnuðu leikinn 79 – 79 þegar 4 og hálf voru eftir. Það lifði þó ekki lengi en á eftir fylgdu KR-ingar með 8-0 áhlaupi og staðan orðin 87 – 79. Villurnar voru að leika menn grátt og þurftu Tómas Þórður Hilmarsson og Darri Hilmarsson einnig að fá sér sæti á bekknum með 5 villur hvor. Stjörnumönnum tókst ekki að vinna til baka forskotið sem KR-ingar náðu á þá enda skotin ekki alveg að detta þeim í vil. Að lokum fór svo að KR fór með sigur af hólmi 90 – 86 og titillinn því í eigu Vesturbæinga í þetta sinn.

 

KR: Brynjar Þór Björnsson 25/4 fráköst, Michael Craion 25/11 fráköst, Darri Hilmarsson 19/4 fráköst, Pavel Ermolinskij 11/16 fráköst/6 stoðsendingar, Þórir Guðmundur Þorbjarnarsson 9/5 fráköst, Snorri Hrafnkelsson 1, Björn Kristjánsson 0, Arnór Hermannsson 0, Vilhjálmur Kári Jensson 0, Ólafur Már Ægisson 0. 

Stjarnan: Justin Shouse 18/9 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 17/6 fráköst, Al'lonzo Coleman 16/6 fráköst/5 stoðsendingar, Marvin Valdimarsson 15, Tómas Þórður Hilmarsson 10/6 fráköst, Sæmundur Valdimarsson 9/10 fráköst, Magnús Bjarki Guðmundsson 1, Kristinn Ólafsson 0, Óskar Þór Þorsteinsson 0, Tómas Heiðar Tómasson 0. 

Dómarar: Kristinn Óskarsson, Einar Þór Skarphéðinsson, Jón Þór Eyþórsson

 

Myndir: Sumarliði Ásgeirsson

Fréttir
- Auglýsing -