Félagarnir Sigurður Gunnar Þorsteinsson og Hörður Axel Vilhjálmsson spiluðu báðir í grísku deildunum um helgina.
Á laugardaginn var Sigurður í eldlínunni með liði sínu Doxa Pefkon sem náði ekki að skila sínum fyrsta sigri í hús og tapaði gegn Panerythraikos, 85-74. Sigurður gerði 15 stig í leiknum og var annar stigahæsti Doxa.
Doxa Pefkon er enn án sigurs í A2 deildinni en freistar þess að krækja í sinn fyrsta þegar þeir fá Livadia í heimsókn á laugardaginn næsta.
Hörður Axel og félagar í Trikala hófu leika í A1 deildinni í gær þegar þeir mættu Korivos Amalidas. Trikala sigraði leikinn 63-74 og skoraði Hörður 7 stig á þeim tæpu 30 mínútum sem hann spilaði. Að auki tók hann 3 fráköst, var með 2 stoðsendingar, 2 stolna bolta og 1 varið skot.
Næsti leikur Trikala er gegn Kavala á laugardaginn 17.10
Mynd/ Siggi Þorsteins eða "Sigi" eins og þeir kalla hann ásamt félögum sínum í Doxa Pefkon – www.machitesbc.gr




