KR-ingar fóru létt með Hauka í kvöld á Ásvöllum í leik sem fór 72 – 95. Það verður seint sagt að þarna hafi farið fram fallegur og skemmtilegur körfuboltaleikur. Gaman að sjá flott tilþrif frá ungum leikmönnum, Kári Jónsson og Þórir Guðmundur Þorbjarnarson áttu flottan leik fyrir sín lið.
Eins og kom fram var þetta ekki áhugaverðasti leikur sögunnar. Heimamenn virtust ekki ætla vera með í leiknum í byrjun 1. leikhluta og tóku sér þrjár mínútur í að komast á blað. Þeir komust smám saman í gang og söxuðu á forskotið sem þeir gáfu liði KR með slakri frammistöðu á fyrstu mínútunum. Tilþrif leiksins komu frá Þóri Guðmundi sem setti niður þriggja stiga flautukörfu rétt fyrir innan miðjulínuna yfir tvo varnarmenn.
Eitthvað hafði lifnað yfir Haukaliðinu í 2. leikhluta. Haukamenn hentu í eitt rándýrt blokk og Emil Barja skellti svo niður þristi og þá lifnaði aðeins yfir mönnum. Haukur Óskarsson og Björn Kristjánsson voru báðir komnir með þrjár villur nokkuð snemma og vandræði í uppsiglingu hjá Hauki. Þetta var í raun eini jafni leikhlutinn og staðan 45 – 50 gestunum í vil.

Haukar mættu í 3. leikhlutann eins og þeir gerðu í upphafi leiks og KR-ingar áttu fyrstu átta stigin eftir hálfleik. Heimamenn litu bara illa út í seinni hálfleik, einfalt mál. Menn voru pirraðir og að fá á sig lélegar villur. Það leit ekki út fyrir að Haukarnir myndu snúa stöðunni við og þá sérstaklega ekki þegar menn voru farnir að öskra á eigin liðsfélaga. Staðan eftir þennan leikhluta var 65 – 77.
Á blaði virðist 12 stiga munur vissulega ekkert óyfirstíganlegur með tíu mínútur eftir á klukkunni en horfandi á leikinn þá sást langa leið hvernig þetta myndi enda. Haukur náði í sína fjórðu villu snemma í 4. leikhlutanum og í framhaldinu fékk þjálfari Hauka, Ívar Ásgrímsson, tæknivillu eftir samskipti við dómarana af hliðarlínunni. Rétt rúmri mínútu seinna villaði Haukur Óskarsson svo endanlega út úr leiknum og var aldeilis ekki sáttur með dómarana. Það var hiti í mönnum á báðum hliðum vallarins og þjálfara KR, Finni Frey, tókst að næla sér í aðvörun frá dómurunum. Þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum meiddist Pavel Ermolinskij á kálfa og þurfti hjálp til að komast af velli og inn í klefa. Þarna var leikurinn augljóslega löngu búinn. Yngri og reynsluminni leikmenn fengu að sýna sitt á lokamínútunum og svo fór að KR vann leikinn 72 – 95.
Haukar-KR 72-95 (22-26, 23-24, 20-27, 7-18)
Haukar: Stephen Michael Madison 25/6 fráköst, Kári Jónsson 18, Haukur Óskarsson 11, Emil Barja 7/7 fráköst, Finnur Atli Magnússon 5/8 fráköst, Kristinn Marinósson 3, Kristinn Jónasson 2, Hjálmar Stefánsson 1, Arnór Bjarki Ívarsson 0, Jón Ólafur Magnússon 0, Ívar Barja 0, Guðni Heiðar Valentínusson 0.
KR: Michael Craion 24/13 fráköst/6 stoðsendingar, Þórir Guðmundur Þorbjarnarsson 14, Pavel Ermolinskij 13/11 fráköst/8 stoðsendingar, Brynjar Þór Björnsson 11/8 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 10/5 stoðsendingar, Darri Hilmarsson 10, Björn Kristjánsson 9, Snorri Hrafnkelsson 4, Jón Hrafn Baldvinsson 0, Arnór Hermannsson 0, Vilhjálmur Kári Jensson 0, Ólafur Þorri Sigurjónsson 0.




