KFÍ hefur samið við Christopher Anderson um að leika með félaginu í 1. deildinni. Christopher, sem er um tveir metrar á hæð, hefur leikið með úrvalsdeildarliði FSu undanfarna mánuði og var með 20,8 stig og 7,5 fráköst í 11 leikjum í öllum keppnum með félaginu. www.kfi.is greinir frá.
Í úrvalsdeildinni leiddi hann FSu í stigaskorum (20,0 stig) og þriggja stiga nýtingu (48,3%) en mest skoraði hann 36 stig í einum leik.
Mynd úr safni/ HDT – Christopher í leik með FSu gegn Grindavík í upphafi leiktíðar.



