Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í Nymburk unnu stór sigur á liði Hiberna frá Írlandi í EuroCup í gærkvöld en lokatölur urðu 106-45.
Þessi sigur Nymburk var aldrei í hættu og náðu þeir strax í upphafi 13-4 forystu. Hiberna var að hitta hrikalega úr þeim 51 skoti sem þeir náðu og alls töpuðu þeir boltanum 28 sinnum sem er ekki boðlegt.
Hörður spilaði 18 mínútur í leiknum og var með 5 stig, 2 stolna bolta og 7 stoðsendingar.
Nymburk situr í öðru sæti riðilsins, einu stigi á eftir Bakken Bears sem hafa farið taplaust í gegn um riðlakeppnina fram til þessa. Næsti leikur liðsins er gegn Tajfun frá Slóveníu 18. nóvember en Nymburk sigraði fyrri leik liðanna örugglega þegar þau mættust í Sóveníu.




