spot_img
HomeFréttirSigmundur dæmir í Euro Cup karla og EuroBaskeWomen2017

Sigmundur dæmir í Euro Cup karla og EuroBaskeWomen2017

Sigmundur Már Herbertsson hélt í gær til Eistlands þar sem hann mun dæma tvo leiki, í kvöld og á morgun í tveimur keppnum. Í kvöld er það leikur heimamanna í Tartu University Rock og ETHA Engomi frá Kýpur en leikurinn er í L riðli FIBA Europe Cup karla. Eistarnir eru í baráttu um að komast upp úr riðlinum, hafa unnið 2 og tapað 2 eins og Juventus Utena frá Ítalíu. Kýpverska liðið situr hins vegar á botninum og hefur ekki unnið leik.

Á morgun miðvikudag dæmir Sigmundur svo leik Eista og Hollendinga í undankeppni EuroBasket kvenna 2017. Í fyrstu umferðinni á laugardag unnu Hollendingar Króata en Eistar töpuðu fyrir Frökkum.

Meðdómarar Sigmundar eru Andrei Sharapa frá Hvíta-Rússlandi og Marko Vladic frá Austurríki. Eftirlitsmaður er Klaus Metzger frá Þýskalandi.

Frétt af www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -