Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Boras þurftu að játa sig sigraða gegn liði Malbas í sænsku deildinni nú í kvöld. Loka staða kvöldsins var 80:64 Malbas í vil. Leikurinn var nokkuð jafn framan af en fljótlega tóku Malbas að síga framúr og þeir gáfu þá forystu aldrei frá sér. Jakob Sigurðarson spilaði 31 mínútu í leiknum og skoraði 9 stig og tók 5 fráköst.



