Sem fyrr þá er það Hólmurinn sem heillar en í kvöld ætla Hólmarar að blása til tvíhöfða í Domino´s-deild karla og kvenna. Það verður kvennalið Snæfells sem ríður á vaðið kl. 18:00 þegar topplið Hauka mætir í heimsókn í stórslag umferðarinnar og að leik loknum mætast Snæfell og Höttur í Domino´s-deild karla eða kl. 20:15.
Báðir leikirnir verða í beinni útsendingu hjá Stöð 2 Sport.
Kvennaleikurinn er sannkallaður toppslagur en Snæfell og Haukar eru jöfn með 24 stig á toppi deildarinnar. Haukar eiga leik til góða á Hólmara, Snæfell með 24 stig eftir 14 leiki en Haukar líka og það eftir 13 leiki. Tíu stig eru í næstu lið fyrir neðan og má ansi margt fara úrskeiðis í þessum herbúðum til að liðin arki ekki áfram í úrslitakeppnina. Hin tvö lausu sætin virðast vera eitthvað sem Valur, Keflavík og Grindavík ætla að freista þess að berjast um en lengra er í nýliða Stjörnunnar með 6 stig og Hamar á botni deildarinnar með 2 stig.
Titringurinn er ekki síðri fyrir karlaleiknum því Höttur hefur náð í sín fyrstu stig og eiga harma að hefna gegn Hólmurum sem stálu sigrinum á Egilsstöðum með flautukörfu frá íþróttamanninum mikla, Sherrod Nigel Wrigt sem leiðir úrvalsdeildina í stigaskori með 27,31 stig að meðaltali í leik. Höttur hefur tapað öllum sex útileikjunum sínum til þessa og eru í 12. sæti með 2 stig en Snæfell er í 10. sæti með 10 stig og því barátta Hattar fólgin í að halda lífi í viðleitni sinni til að festa sætið í úrvalsdeild og þá er ekkert í boði annað en sigur í kvöld.
Nóg við að vera annars í kvöld en hér að neðan gefur að líta alla leiki dagsins:
| 19-01-2016 18:00 | Úrvalsdeild kvenna | Snæfell | Haukar | Stykkishólmur | |
| 19-01-2016 19:15 | 1. deild kvenna | Skallagrímur | KR | Borgarnes | |
| 19-01-2016 19:15 | Drengjaflokkur | Njarðvík dr. fl. | Haukar dr. fl. | Njarðvík | |
| 19-01-2016 20:00 | Drengjaflokkur | Breiðablik dr. fl. | Fjölnir dr. fl. | Smárinn | |
| 19-01-2016 20:00 | Drengjaflokkur | Keflavík dr. fl. | Grindavík dr. fl. | TM höllin | |
| 19-01-2016 20:00 | Unglingafl. kvenna bikar | Grindavík ungl. fl. st. | Njarðvík ungl. fl. st. | Mustad höllin | |
| 19-01-2016 20:15 | Úrvalsdeild karla | Snæfell | Höttur | Stykkishólmur | |
| 19-01-2016 20:30 | Drengjaflokkur | Valur dr. fl. | Fjölnir b dr. fl. | Valshöllin | |
| 19-01-2016 21:10 | 2. deild karla | Haukar b | Fjölnir b | Schenkerhöllin |



