Í kvöld fara fram tveir leikir í Domino´s-deild kvenna en þeir marka lok 15. umferðar. Báðir hefjast þeir kl. 19:15. Þá eru tveir leikir í bikarkeppni yngri flokka.
Í Grindavík eigast við gular og botnlið Hamars og svo mæta nýliðar Stjörnunnar í heimsókn til Keflavíkur. Suðurnesjaliðin munu selja sig dýrt í kvöld enda Grindavík í 5. sæti með 12 stig og Keflavík í 4. sæti með 14 stig í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni.
Allir leikir dagsins
| 20-01-2016 19:15 | Úrvalsdeild kvenna | Grindavík | Hamar | Mustad höllin | |
| 20-01-2016 19:15 | Úrvalsdeild kvenna | Keflavík | Stjarnan | TM höllin | |
| 20-01-2016 20:40 | Drengjaflokkur bikarkeppni | Fjölnir b dr. fl. | Breiðablik dr. fl. | Dalhús | |
| 20-01-2016 20:40 | 9. flokkur stúlkna bikarkeppni | Keflavík 9. fl. st. | Ármann/Valur 9. fl. st. | TM höllin |



