Helgi Már Magnússon var svo sannarlega betri en engin í kvöld þegar hann smellti niður þremur fljótum þristum fyrir KR í fjórða fjórðung leiksins gegn Njarðvík. Þau stig komu á hárréttum tíma fyrir KR-inga og í raun hélt þeim á floti þegar Njarðvíkingar þjörmuðu sem harðast að þeim. Fram að því sagðist Helgi hafa verið ömurlegur á báðum endum vallarins og skuldað félögum sínum þessi stig.



