spot_img
HomeFréttirÚrslit: Ellefti bikartitill KR!

Úrslit: Ellefti bikartitill KR!

KR er Poweradebikarmeistari karla 2016 eftir 95-79 sigur á Þór Þorlákshöfn í bikarúrslitaviðureign liðanna í Laugardalshöll. Helgi Már Magnússon var valinn besti maður leiksins með 26 stig, 6 fráköst og 3 stoðsendingar.

Vance Hall var með 34 stig og 6 fráköst í liði Þórs en liðin buðu upp á skemmtilegan bikarúrslitaleik þar sem KR sýndi snilli sína og klókindi í síðari hálfleik og gerðu þannig út um leikinn.

 

Þetta var ellefti bikartitill KR-inga í karlaflokki en KR er það lið sem unnið hefur flesta bikartitla í karlaflokki.

 

Nánar um leikinn síðar…

Fréttir
- Auglýsing -