spot_img
HomeFréttirBirgir stígur til hliðar úr stjórasæti KFÍ

Birgir stígur til hliðar úr stjórasæti KFÍ

Birgir Örn Birgisson þjálfari KFÍ og stjórn félagsins hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að Birgir stígi nú til hliðar sem þjálfari meistaraflokks félagsins. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Ísfirðinga en Birgir mun engu að síður áfram sinna þjálfun hjá yngri flokkum félagsins.

Á heimasíðu KFÍ segir:

Stjórn KFÍ hefur undanfarið leitað leiða til styrkja starfsemi yngri flokka félagsins. Niðurstaðan er sú að ráða til félagsins yfirþjálfara sem sinna mun þjálfun og skipulagi yngri flokkanna ásamt þjálfun meistaraflokks karla. Uppbygging yngri flokkanna er fjöregg félagsins, en mjög hefur fjölgað í yngri æfingahópum undanfarin misseri og brýnt að koma skipulagi þeirra í fastari skorður. Því telur stjórn mikilvægt að huga strax að þessum framtíðaráformum. Til að liðka fyrir leit að einstaklingi í þessa nýju stöðu hjá félaginu er það sameiginleg ákvörðun stjórnar KFÍ og Birgis Arnar að hann víki sem þjálfari meistararaflokks en sinni áfram þjálfun á vegum yngri flokkanna.

Stjórn KFÍ færir Birgi Erni bestu þakkir fyrir hans fórnfúsa starf í þágu félagsins undanfarin ár og hlakkar til áframhaldandi samstarfs við hann. Þar til nýr yfirþjálfari kemur til starfa munu þeir Guðni Ólafur Guðnason og Shiran Þórisson stýra æfingum og leikjum meistaraflokks karla.

KFÍ situr í 8. sæti 1. deildar með 6 stig eftir 3 sigra og 10 tapleiki á tímabilinu. 

Staðan í 1. deild karla
 

Deildarkeppni
Nr. Lið U/T Stig
1. Þór Ak. 11/3 22
2. Fjölnir 10/3 20
3. Skallagrímur 10/3 20
4. Valur 9/4 18
5. ÍA 8/5 16
6. Hamar 7/6 14
7. Breiðablik 6/7 12
8. KFÍ 3/10 6
9. Ármann 2/11 4
10. Reynir Sandgerði 0/14 0
Fréttir
- Auglýsing -