spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Toppsætið að veði í DHL-Höllinni

Leikir dagsins: Toppsætið að veði í DHL-Höllinni

Toppliðin KR og Keflavík mætast í DHL-Höllinni í kvöld í Domino´s-deild karla. Viðureign liðanna hefst kl. 19:15 og verður leikurinn í beinni á Stöð 2 Sport. Nýkrýndir bikarmeistarar KR hafa 28 stig á toppi deildarinnar en Keflavík er fast á hæla þeirra með 26 stig og unnu fyrri viðureign liðanna 89-81. Til að KR takist að hrifsa til sín innbyrðis viðureignina verða þeir að vinna Keflavík með 9 stiga mun eða meira.

Þá er nóg við að vera í kvöld enda fjórir leikir í 1. deild karla þar sem verður Vesturlandsslagur Skallagríms og ÍA og boðið verður upp á tvíhöfða í Smáranum í Kópavogi þar sem Blikaliðin bjóða velkomin lið KFÍ og Njarðvíkur. 

 

Leikir kvöldsins 

 

Domino´s-deild karla 

19:15 KR – Keflavík

 

1. deild karla 

18.30 Fjölnir – Reynir Sandgerði

19.15 Hamar – Ármann

19.15 Skallagrímur – ÍA

19.15 Breiðablik – KFÍ 

 

1. deild kvenna

18.00 Breiðablik – Njarðvík  

 

Allir leikir dagsins 

19-02-2016 18:00 1. deild kvenna Breiðablik   Njarðvík Smárinn
19-02-2016 18:30 1. deild karla Fjölnir   Reynir Sandgerði Dalhús
19-02-2016 19:00 Unglingaflokkur kvenna Snæfell ungl. fl. st.   Keflavík ungl. fl. st. Stykkishólmur
19-02-2016 19:15 Úrvalsdeild karla KR   Keflavík DHL-höllin
19-02-2016 19:15 1. deild karla Hamar   Ármann Hveragerði
19-02-2016 19:15 1. deild karla Skallagrímur   ÍA Borgarnes
19-02-2016 20:00 1. deild karla Breiðablik   KFÍ Smárinn
19-02-2016 20:00 Stúlknaflokkur Njarðvík st. fl.   Keflavík st. fl. Njarðvík
19-02-2016 20:00 Unglingaflokkur karla Stjarnan ungl. fl. dr.   Tindastóll ungl. fl. dr. Ásgarður
19-02-2016 21:00 2. deild karla
Fréttir
- Auglýsing -