spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Verður Skallagrímur deildarmeistari í kvöld?

Leikir dagsins: Verður Skallagrímur deildarmeistari í kvöld?

Toppslagur fer fram í 1. deild kvenna í kvöld þegar KR tekur á móti toppliði Skallagríms kl. 19:15 í DHL-Höllinni. Skallagrímur vermir toppsæti deildarinnar með 28 stig en KR er í 2. sæti með 18 stig. Þó er ekki enn öll von úti hjá KR í baráttunni um toppsætið en það er langsóttur möguleiki.

Fjórföld umferð er í 1. deild kvenna og Skallagrímur sem leikið hefur 15 leiki hefur 28 stig. KR hefur leikið 13 leiki og er með 18 stig. Sigur hjá KR í kvöld minnkar forystu Skallagríms niður í 8 stig, þá á KR 10 stig eftir í pottinum. Þau tíu stig verða að detta í hús og Skallagrímur að misstíga sig ansi oft, nánast tapa öllum leikjum sem eftir eru í deildinni til þess að KR geti orðið deildarmeistari. Líkast til eru liðin ekki farin að hugsa svona langt heldur einbeita sér að slag kvöldsins og má búast við góðum leik í DHL-höllinni í kvöld. 

 

Ef Skallagrímur vinnur í kvöld verður liðið deildarmeistari því þá setja Borgnesingar 12 stig á milli sín og KR og aðeins 10 stig verða eftir í pottinum fyrir KR-inga.

 

Þá mætast Breiðablik og Þór Þorlákshöfn/Reynir kl. 19:00 í Smáranum í unglingaflokki karla og Ármann/Valur mætir KR í stúlknaflokki kl. 20:00 í Kennó.

 

Staðan í 1. deild kvenna

Deildarkeppni
Nr. Lið U/T Stig
1. Skallagrímur 14/1 28
2. KR 9/4 18
3. Njarðvík 7/5 14
4. Breiðablik 6/9 12
5. Þór Ak. 4/6 8
6. Fjölnir 0/15 0
Fréttir
- Auglýsing -