spot_img
HomeFréttirTímabili Kristins lokið þetta árið hjá Marist

Tímabili Kristins lokið þetta árið hjá Marist

Kristinn Pálsson og félagar í Marist töpuðu í gærkvöldi í úrslitakeppni MAAC riðilsins gegn liði Manhattan sem er fyrrum háskóli Brenton Birmingham sem flestir ættu að þekkja.   Marist fór í leikinn sem undirhundar og töpuðu sem slíkir, lokastaða leiksins 81:63 Manhattan í vil.  Kristinn setti niður 7 stig og tók 6 fráköst á þeim 33 mínútum sem hann spilaði.  Kristinn hefur því lokið nýliða ári sínu í háskólaboltanum. 

Fréttir
- Auglýsing -