spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: KR getur klárað deildarmeistaratitilinn í kvöld

Leikir dagsins: KR getur klárað deildarmeistaratitilinn í kvöld

Í kvöld hefst 21. umferð Domino´s-deildar karla og eru fjórir leikir á dagskránni en umferðinni lýkur á morgun og svo fer síðasta umferðin fram næstkomandi fimmtudag.

Leikir dagsins í Domino´s-deild karla

 

18.30 Höttur – Þór Þorlákshöfn

19:15 KR – Fsu 

19:15 Snæfell – Stjarnan

19:15 Tindastóll – Grindavík 

 

Með sigri í kvöld gulltryggir KR sér deildarmeistaratitilinn en Íslands- og bikarmeistararnir hafa 32 stig á toppi deildarinnar en Keflavík og Stjarnan eru í 2.-3. sæti með 28 stig. KR mætir FSu í kvöld sem tapað hefur átta deildarleikjum í röð og ljóst að það er brekka framundan hjá nýliðunum. Þá má bæta því við að deildarmeistaratitillinn er aldrei afhentur fyrr en í næsta heimaleik eftir að lið tryggir sér þann titil, ef heimaleikur dúkkar ekki upp þá notast KKÍ við næsta hentuga tækifæri svo sigur í kvöld hjá KR gerir það að verkum að þeir fá deildarmeistaratitilinn afhentan á heimavelli erkifjenda sinna, ÍR, í lokaumferðinni. 

Allir leikir dagsins
 

06-03-2016 13:00 Unglingaflokkur kvenna Snæfell ungl. fl. st.   Breiðablik ungl. fl. st. Stykkishólmur
06-03-2016 16:00 Stúlknaflokkur KR st. fl.   Ármann/Valur st. fl. DHL-höllin
06-03-2016 16:00 Unglingaflokkur kvenna Grindavík ungl. fl. st.   Haukar ungl. fl. st. Mustad höllin
06-03-2016 17:30 Unglingaflokkur kvenna Fjölnir ungl. fl. st.   Keflavík ungl. fl. st. Dalhús
06-03-2016 18:30 Úrvalsdeild karla Höttur   Þór Þ. Egilsstaðir
06-03-2016 19:15 Úrvalsdeild karla KR   FSu DHL-höllin
06-03-2016 19:15 Úrvalsdeild karla Snæfell   Stjarnan Stykkishólmur
06-03-2016 19:15 Úrvalsdeild karla Tindastóll   Grindavík Sauðárkrókur

Mynd úr safni/ Darri Hilmarsson og KR-ingar geta tryggt sér deildarmeistaratitilinn í kvöld en fá hann ekki afhentan þó sigur vinnist á FSu.

Fréttir
- Auglýsing -