spot_img
HomeFréttirBiðinni lokið! Úrslitakeppnin hefst í kvöld

Biðinni lokið! Úrslitakeppnin hefst í kvöld

Þá er komið að því, úrslitakeppnin í Domino´s-deild karla hefst í kvöld þar sem rimmur KR og Grindavíkur annarsvegar og Keflavíkur og Tindastóls hinsvegar hefjast. KR á heimaleikjaréttinn gegn Grindavík og Keflavík á heimaleikjaréttinn gegn Tindastól. Báðir leikir liðanna hefjast kl. 19:15 í kvöld. Viðureign Keflavíkur og Tindastóls verður í beinni útsendingu hjá Stöð 2 Sport í kvöld. 

Vinna þarf þrjá leiki til þess að komast áfram í undanúrslit keppninnar.

 

Hinar tvær rimmurnar í 8-liða úrslitum hefjast annað kvöld en þar mætast Stjarnan-Njarðvík og Haukar-Þór Þorlákshöfn. 

Allir leikir dagsins

17-03-2016 19:00 Unglingaflokkur kvenna Þór Ak. ungl. fl. st.   Grindavík ungl. fl. st. Síðuskóli
17-03-2016 19:15 Úrvalsdeild karla KR   Grindavík DHL-höllin
17-03-2016 19:15 Úrvalsdeild karla Keflavík   Tindastóll TM höllin
Fréttir
- Auglýsing -