Hvað ætli leikmenn setji á fóninn rétt fyrir leik?
Við fengum leikmann Tindastóls, Viðar Ágústsson, til þess að ljóstra upp fyrir okkur hvaða lög það væru sem hlustað væri á til þess að koma sér í gírinn.
Tindastóll fær Keflavík í heimsókn í fjórða leik 8 liða úrslita Dominos deildarinnar kl. 19:15 í kvöld og er leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Viðar:
"Var beðin um að henda í pepplista og þetta eru svona nokkur vel valin lög sem ég hlusta oft á á leikdögum og þá sérstaklega í rútuferðunum en maður fær lítið að stjórna tónlistinni í klefanum þar sem Flake sér alfarið um tónlistarvalið!"
100.000 – Úlfur Úlfur
Verður maður ekki að nefna Úlf Úlf, fáránlega flottir strákar með flott lag, enda frá króknum!
Gold Digger – Kanye West
Gamalt og gott, lag sem hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi.
I took a pill in Ibiza – Seeb remix
Nýtt og gott lag með skemmtilegum takt og kemur manni í ákveðið zone, það er alltaf einhver í liðinu sem er að raula viðlagið! Festist alveg í hausnum á manni.
Í næsta lífi – Bent
Íslenskt og gott. Bent er með betri íslensku röppurunum og á því skilið að fá að fylgja með!
Not afraid – Eminem
Þarf ekkert að útskýra þetta lag nánar, er einfaldlega bara of gott
Stronger – Kenye West
Þetta er svona síðasta lagið sem maður hlustar á fyrir leik og verður aldrei þreytt!
Stuðningslag Tindastóls
Læt þetta fylgja með í lokinn



