Tindastóll og Haukar mætast í sínum öðrum leik í kvöld í undanúrslitum Domino´s-deildar karla kl. 19:15 í Síkinu á Sauðárkróki. Haukar leiða einvígið 1-0 en fá nú það vandasama verkefni að reyna að ná í sigur á einum af sterkustu heimavöllum landsins.
Haukar tóku 1-0 forystu í einvíginu með 73-61 sigri í síðasta leik þar sem Brandon Mobley gerði 17 stig í liði Hauka en Helgi Rafn Viggósson var með 18 stig í liði Tindastóls.
Þá höfum við á Karfan.is látið heimamenn í Skagafirði hafa Snapchat-aðganginn okkar svo fylgist grannt með gangi mála á Snapchat: Karfan.is
Allir leikir dagsins
| 06-04-2016 17:30 | Unglingaflokkur kvenna | Breiðablik ungl. fl. st. | Keflavík ungl. fl. st. | Smárinn | |
| 06-04-2016 18:30 | Unglingaflokkur karla | Grindavík ungl. fl. dr. | FSu ungl. fl. dr. | Mustad höllin | |
| 06-04-2016 19:15 | Úrvalsdeild karla | Tindastóll | Haukar | Sauðárkrókur |
Mynd/ Bára Dröfn



