Allar líkur eru á því að Njarðvíkingurinn Ólafur Helgi Jónsson muni semja við Þór í Þorlákshöfn í Domino's deildinni í körfubolta á næstu dögum. Víkurfréttir greina frá.
„Ég stefni að því já. Það mun væntanlega gerast á næstunni. Fyrir sjálfan mig þá tel ég þetta nauðsynlegt,“ sagði Ólafur í samtali við Víkurfréttir nú í hádeginu. Ólafur hefur hugsað málið allt frá því að úrslitakeppni lauk og ráðfært sig við ýmsa aðila. Guðmundur bróðir hans lék með Þórs liðinu á sínum tíma og líkaði vel. „Þetta er engin skyndiákvörðun,“ segir framherjinn. Þar hittir hann fyrir Njarðvíkingana Einar Árna Jóhannsson þjálfara og Maciek Baginski félaga sinn. Ólafur viðurkennir að það skemmi ekki fyrir að þeir séu þarna fyrir en það sé ekki ástæðan fyrir þessum vistaskiptum.



