spot_img
HomeFréttir7 Kostakaup

7 Kostakaup

 

Nú eftir 1. júlí síðastliðinn opnaðist leikmannamarkaður NBA deildarinnar upp á gátt aftur. Launaþak deildarinnar er að hækka og það er eins og gjörsamlega allir hafi misst vitið. Sem dæmi þá fékk Mike Conley, leikmaður Memphis Grizzlies, á dögunum besta samning sem sést hefur í sögu NBA deildarinnar. Mikið af liðum eru ennþá að ræða við mikið af leikmönnum, ekki skrýtið, enda erum við enn bara á sjöunda degi. Hérna eru 7, mögulega, mestu kostakaup sem orðið hafa síðastliðna daga.

 

Hérna eru 10 bestu leikmannaflutningar síðustu daga.

Hérna eru 5 verstu leikmannaflutningar síðustu daga.

 

Það skal tekið fram að þetta á aðeins við um leikmenn sem skipt hafa um lið. Einnig er listinn ekki í neinni sérstakri röð.

 

Boban Marjanovic til Detroit Pistons 

 

7 miljónir $ á frjálsri sölu frá San Antonio Spurs (þriggja ára samningur)

 

Annað sumarið í röð sem að Detroit Pistons nýta sér "uppeldisstarf" San Antonio Spurs, síðasta sumar gerðu þeir samning við Aron Baynes (líka frá Spurs) Næsta vetur verða þeir báðir í því að bakka heljarmennið Andre Drummond upp. Við höldum að það eigi alveg eftir að ganga upp. Baynes stóð sig með prýði fyrir þá í fyrra og Boban sýndi það svo sannarlega á síðasta tímabili að per mínútu meðaltöl hans keppa fáir varamiðherjar, ef einhverjir við (21 stig og 14 fráköst per 36 mínútur). Verður spennandi að fylgjast með honum áfram.

 

 

Nene til Houston Rockets

 

2.9 miljónir $ á frjálsri sölu frá Washington Wizards (eins árs samningur)

 

Nú er það gefið að þarna er á ferðinni leikmaður með ákveðin gæði. Þegar að Nene var upp á sitt besta var hann að skora 14 stig og taka 8 fráköst að meðaltali í leik. Það var hinsvegar árið 2012. Nene hefur í aðeins eitt skipti náð að spila heilt tímabil. Oftar en ekki hefur meira að segja vantað alveg helling upp á leikina. Þó náði hann í fyrra að spila 57 leiki og tímabilið á undan 67. Var með 9 stig og 5 fráköst að meðaltali í leik í fyrra. Fyrir þennan pening samt er hann alveg hreint kjörinn. Skuldbindingin er sama og engin. Ef hann nær að skila einhverju þá er það fínt, ef ekki þá er áhættan söm og engin. Við höldum samt að hann eigi eftir að skila sínu. Við segjum að hann fái létt prógram fram að stjörnuleik, eftir hann svo eina og eina pásu fram að úrslitakeppninni þar sem að innkoma hans á eftir að skipta máli.

 

 

David West til Golden State Warriors

 

1.55 miljónir $ á frjálsri sölu frá San Antonio Spurs (eins árs samningur)

 

Það er ekki lítið sem David West er ekki tilbúinn að gefa til að ná sér í hring. Í fyrra fór hann frá Indiana Pacers til San Antonio Spurs og skildi 12 miljónir $ eftir á borðinu. Þetta árið er hann að gera svipaða hluti (þó við efumst um að það séu 12 miljónir í þetta skiptið) Til þess eins að vinna titil. Ef að Warriors vinna ekki titilinn næsta tímabil verður enginn eins reiður eins og fjölskylda David West, við gefum okkur það. Burtséð frá öllu því, þá er David West, þrátt fyrir að vera 35 ára, ennþá, flottur leikmaður. Á 18 mínútum að meðaltali í leik í fyrra var hann að skila 7 stigum og 4 fráköstum. Á, algjörlega vafalaust, eftir að vera Warriors dýrmætur þetta komandi tímabil.

 

 

Seth Curry til Dallas Mavericks

 

3 miljónir $ á frjálsri sölu frá Sacramento Kings (tveggja ára samningur)

 

Já, litli bróðir Stephen Curry er í NBA deildinni og hann er hreint ekki sem verstur. Eftir nokkur mögur ár (verið í deildinni frá 2013) fékk hann loksins aðeins að spila í fyrra með Kings. Skoraði 7 stig að meðalatali í leik þar. Það sem kannski meira er, er að hann er betri þriggja stiga skytta heldur en bróðir sinn (munar 0.01% í nýtingu) Ætti að fá nokkra fleiri möguleika næsta tímabil með Mavericks þar sem hann þó verður líklegast þriðji í röðinni á eftir Deron Williams og J.J. Barea. 

 

 

Zaza Pachulia til Golden State Warriors

 

2.9 miljónir $ á frjálsri sölu frá Dallas Mavericks (eins árs samningur)

 

Hversu ósanngjarnt er að liðið sem skilaði besta árangri (73-9) frá upphafi síðasta tímabil geti svo í sumar náð í einn besta leikmann deildarinnar, Kevin Durant, sem og tvo reynslubolta sem geta spilað inní teig í Pachulia og West? Á móti kemur að þeir gátu ekki samið við tvo af lykilmönnum sínum í staðinn, þá Harrison Barnes og Andrew Bogut (enduðu báðir hjá Dallas). Verður samt sem áður að teljast einkar gott. Pachulia er, þrátt fyrir að vera orðinn 32 ára gamall, ennþá hörku leikmaður. Skilaði 9 stigum og 9 fráköstum að meðaltali í leik í fyrra.

 

 

Mirza Teletovic til Milwaukee Bucks

 

10 miljónir $ á frjálsri sölu frá Phoenix Suns (þriggja ára samningur)

 

Teletovic átti sitt besta tímabil til þessa í fyrra. Á aðeins um 20 mínútum spiluðum að meðaltali í leik var hann að skila 12 stigum (40% þriggja stiga skytta) og 4 fráköstum. Haldi Teletovic áfram að bæta sig, sem við höldum að hann geri, lítur þessi samningur (með hækkandi launaþaki) alltaf betur og betur út. Spilar reyndar sömu stöðu og Gríska Undrið hjá Bucks, en við höldum að Jason Kidd (þjálfari) viti hvað hann sé að gera.

 

 

Ish Smith til Detroit Pistons

 

6 miljónir $ á frjálsri sölu frá Philadelphi 76ers (þriggja ára samningur)

 

Eitthvað eru forráðamenn Pistons að gera rétt fyrst þeir eru með tvo leikmenn (Boban var hinn) á þessum lista. Ish Smith hefur spilað með 8 liðum frá því að hann kom inn í deildina árið 2010. Fór samt fyrst að fá einhvern almennilegan spilatíma þegar að hann mætti til 76ers (það hyldýpi) árið 2014. Síðan þá hefur hann átt einn og einn leik þar sem hann hefur verið hreint stórkostlegur bæði fyrir 76ers sem og New Orleans Pelicans (sem hann spilaði fyrir í millitíðinni) Spilaði 50 leiki fyrir 76ers í fyrra, byrjaði alla 50, var með 15 stig, 4 fráköst og 7 stoðsendingar að meðaltali í leik. Mun alveg örugglega spila sem varaskeifa fyrir Reggie Jackson hjá Pistons. Fyrir 6 miljónir $ á ári er það fín varaskeifa, höldum við.

Fréttir
- Auglýsing -