Íslenska U20 landsliðið vann rétt í þessu nauman 70-67 sigur á heimamönnum í Grikklandi í undanúrslitum B-deildar evrópumóts landsliða í Grikklandi og er því öruggt með sæti í A deild á næsta ári. Liðið leikur einnig til úrslita í mótinu á morgun gegn Svartfjallalandi.
Mikið jafnræði var á með liðunum í leiknum. Eftir fyrsta leikhluta leiddi Ísland 21-15, en þegar að liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik var Grikkland komið yfir, 32-37. Seinni hálfleikinn voru Ísland svo aftur betri en heimamenn og fóru með 2 stiga forystu inn í lokaleikhlutann. Í honum var svo allt í járnum. Þar sem Ísland fór svo að lokum með 3 stiga sigur af hólmi 70-67.
Kári Jónsson var stórkostlegur fyrir Ísland í leiknum, en hann skoraði 29 stig, tók 8 fráköst, gaf 2 stoðsendingar og stal 3 boltum á þeim 36 mínútum sem hann spilaði.
Þjálfari liðsins, Finnur Freyr Stefánsson, var að vonum kampakátur eftir sigur sinna manna:
Þjálfari U18 stúlkna, Ingi Þór Steinþórsson, benti svo réttilega á að nú væri þetta U20 ára lið komið í góðan félagsskap liða frá Íslandi:




