Undir 20 ára lið drengja Íslands sigraði heimamenn í Grikklandi fyrr í kvöld í undanúrslitum B deildar evrópumóts þessa árs. Með sigrinum er liðið bæði komið í úrslitaleik morgundagsins gegn Svartfjallalandi sem og búið að tryggja sér sæti (efstu 3 lið deildarinnar) í A deildinni á næsta ári.
Karfan náði tali af þjálfara liðsins, Finni Frey Stefánssyni, skömmu eftir að fagnaðarlætin enduðu og fékk að spyrja hann aðeins út í sigurinn í dag og úrslitaleikinn gegn Svartfellingum á morgun.
Hvað var það sem var að skapa þetta fyrir ykkur í dag?
"Frá því við komum hingað hefur það verið altalað að þetta gríska lið sé það sterkasta hérna. Þeir urðu í 3.sæti í A deildinni i U18 fyrir 2 árum (sami árgangur), unnu hana i fyrra og eru nýkomnir af HM U21 þar sem þeir enduðu meðal efstu þjóða. Þannig eftir sigurinn gegn Georgíu í gær töluðum við um að mæta til leiks og njóta þess að spila i þessu umhverfi, fyrir framan fulla höll, á móti þeim bestu. Það er eitt af markmiðum okkar sem erum í íþróttum að fá að mæla sig upp gegn þeim sem fremst standa. Taka lætin og orkuna úr stúkunni og nota hana okkur i vil og fá stúkuna til að þagna. Það er engin tilfinning betri en að vera á erfiðum útivelli og fá fólkið til að þagna."
"Við héldum okkur við okkar prinsipp bæði i vörn og sókn, tókum áhættur á nokkrum leikmönnum og lokuðum frekar á aðra. Sóknarlega héldum við áfram að gera það sem við höfum gert allt mótið, spila saman, þora og skjóta helvítis tuðrunni. Loks var markmiðið að halda leiknum jöfnum eftir fyrsta, í hálfleik, eftir þriðja. Taka svo mómentið þegar það kæmi i fjórða. Það er erfitt að leiða svona heilan leik en við vissum að ef við gætum sett þá á hælana i lokin þá yrði pressan og stressið á þá óbærilegt. Það má segja að þetta hafi allt gengið eftir, þrátt fyrir að missa Jón Axel útaf i meiðsli í þriðja, þá stigu aðrir upp. Kári dróg vagninn sóknarlega, en þvílík liðsframmistaða i vörninni og fráköstum."
Hvernig metur þú möguleika liðsins gegn Svartfellingum?
"Með sigrinum er sæti i A deild tryggt eftir að hafa tekið þátt i einni erfiðustu B deild sögunnar (það var fækkað i A deild í fyrra og 7 lið fóru niður). Núna er það bara bónus leikur á morgun þar sem allt verður skilið eftir. Svartfellingar eru svakalega sterkir, með besta miðherji mótsins. Tryggvi fær þvi annað verðugt verkefni á morgun, en það má segja að hann hafi snýtt gríska mótherja sínum í dag. Með trú í hjarta og bros á vör getur allt gerst."




