spot_img
HomeFréttirHelena ekki með á næsta tímabili

Helena ekki með á næsta tímabili

 

Besti leikmaður Dominos deildar kvenna í fyrra, leikmaður Hauka, Helena Sverrisdóttir, mun ekki leika með liðinu á næsta keppnistímabili sökum barneigna. Þetta staðfesti hún í samtali við mbl fyrr í dag. Er hún þá þriðji mikilvægi leikmaðurinn sem vanta mun í Haukaliðið á næsta tímabili, en áður höfðu Jóhanna Björk Sveinsdóttir og Auður Íris Ólafsdóttir yfirgefið Hafnarfjarðarfélagið fyrir nýliða Skallagríms.

 

Ljóst er að um mikinn missir er fyrir lið Hauka, en á síðasta tímabili skoraði Helena 23 stig, tók 13 fráköst og gaf 8 stoðsendingar að meðaltali í leik.

 

Karfan.is óskar Helenu og manni hennar Finn Atla Magnússyni (kraftframherja karlaliðs Hauka) innilega til hamingju.

Fréttir
- Auglýsing -