Grindavík mætti Haukum í fyrsta leik Dominos deildar kvenna. Miðað við spá í deildinni eiga Grindavíkurstelpur að verma 3. sæti deildarinnar en Haukastelpur að enda í 7. sæti af þeim 8 sem í boði eru. Grindavík skilaði leiknum vel en þær sigruðu leikinn með 15 stigum. Leikurinn var hraður og mikið var um tapaða bolta en þeir voru 31 talsins.
Þáttaskil
Grindvíkingar áttu erfitt uppdráttar en í öðrum leikhluta tóku þær leikinn í sínar hendur og unnu leikhlutann 30 – 4. Eftir þriðja leikhluta var sigur í höfn og var að sjá að Björn Steinar spilaði inn bekknum í fjórða og síðasta leikhluta leiksins.
Tölfræðin lýgur ekki
Tölfræðin hjá Haukastelpum var hreint út sagt skelfileg fram í síðasta leikhluta. Grindavík vann leikinn með fráköstum en þær voru með 47 fráköst á móti 32 fráköstum Hauka.
Hetjan
Íris Sverrisdóttir átti hörku innkomu af bekknum og var maður leiksins að mati Sverris Sigurðssonar. Leikmaður leiksins Hauka megin var Anna Lóa. Hún var kröftug og skilaði góðu. Kjarninn Grindavík byrjar deildina vel með góðum sigri á Haukum 78 – 63.
Umfjöllun / Jenný Ósk Óskarsdóttir




