HomeFréttirFulltrúar Íslands gengu útaf fundi FIBA Europe "Þessu stríði Rússa með stuðningi...

Fulltrúar Íslands gengu útaf fundi FIBA Europe “Þessu stríði Rússa með stuðningi Belarús verður að ljúka strax”

Guðbjörg Norðfjörð formaður og Hannes Jónsson framkvæmdarstjóri KKÍ ásamt fulltúum Eystrasaltsþjóðana, Póllands, Hollands og hinna Norðurlandaþjóðanna gengu útaf þingi FIBA Europe er fulltrúi Belarus hélt ræðu á þinginu í Munchen nú fyrir helgina.

Samkvæmt færslu framkvæmdarstjórans á samfélagsmiðlum mun útgangan hafa verið til þess að sýna Úkraínu sinn stuðning í ljósi þeirra hremminga sem þjóðin hefur orðið fyrir sökum innrásarstríðs Rússlands í landið og stuðnings Belarus við þá innrás.

Færslu Hannesar má sjá hér fyrir neðan, en í henni segir hann enn frekar að þessu stríði Rússa með stuðningi Belarús verði að ljúka strax og að KKÍ og körfuboltinn á Íslandi standi með Úkraínu og þjóðinni allri.

Fréttir
- Auglýsing -