Undir 16 ára lið drengja tapaði fyrsta leik sínum á norðurlandamótinu í Kisakallio fyrir heimamönnum í Finnlandi, 75-83. Leikurinn sá fyrsti hjá íslenska liðinu, sem á morgun leikur gegn Noregi.
Gangur leiks
Ísland byrjaði leik dagsins af krafti. Eftir að hafa hleypt heimamönnum eilítið frammúr, ná þeir að jafna leikinn og eru yfir, 19-18, eftir fyrsta leikhluta. Í upphafi annars ná heimamenn í Finnlandi svo að komast aftur yfir og leiða með 6 stigum þegar að liðin halda til búningsherbergja í hálfleik, 32-38.
Í upphafi seinni hálfleiksins nær Finnland svo að auka við þá forystu sína. Voru mest 15 stigum yfir í 3. leikhlutanum, 67-52. Ísland nær þó aðeins að jafna stöðu sína í lok leiksins og hefðu með smá heppni mögulega getað gert hann spennandi, en allt kom fyrir ekki. Finnland fór með sigur af hólmi 75-83.
Kjarninn
Þó Ísland hafi verið undir í 38 af 40 mínútum þessa leiks, er vel hægt að hrósa þeim fyrir að leggjast aldrei í grasið í þessum leik. Þeir börðust allt fram til lokaflautunnar og eiga hrós skilið fyrir það.
Tölfræðin lýgur ekki
Ísland fær aðeins 13 stig af bekk sínum á meðan að hjá Finnlandi voru þau 35.
Leikmaður leiksins
Veigar Áki Hlynsson var besti leikmaður Íslands í dag. Á 34 mínútum spiluðum skoraði Veigar 21 stig, tók 8 fráköst, gaf 3 stoðsendingar og stal 4 boltum
Viðtöl:




