spot_img
HomeFréttirTap U18 drengja gegn Finnlandi eftir æsispennandi lokamínútur

Tap U18 drengja gegn Finnlandi eftir æsispennandi lokamínútur

Ísland tapaði gegn Finnlandi í U18 flokki á Norðurlandamóti yngri landsliða í dag sem fram fer í Finnlandi. Íslenska liðið hafði yfirhöndina í fyrri hálfleik en einbeitingarleysi í byrjun seinni hálfleik og slök vítanýting var dýr undir lokin.

 

Umfjöllun um helstu þætti leiksins má finna hér að neðan:

 

Gangur leiksins: 

 

Íslenska liðið fór vel af stað og var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Liðið spilaði heilt yfir góða vörn og var sterkt að keyra að körfunni. Ísland hélt forystunni í fyrri hálfleik en hún hefði mátt vera stærri. Leikmönnum gekk illa að nýta tækifæri til að stinga af en það verður ekki tekið af finnum að þeir léku fína vörn einnig. Staðan í hálfleik 39-35.

 

Ísland kom flatt til leiks í seinni hálfleik og missti forystuna fljótt niður. Finnska liðið spilaði harðari vörn og tókst að ýta Íslandi útúr sínum aðgerðum. Á sama tíma gaf íslenska liðið alltof auðveldar körfur út töpuðum boltum. Ísland tapaði þriðja leikhluta með tíu stigum og fór sex stigum undir inní síðasta leikfjórðung. 

 

Finnska liðið náði ellefu stiga forskoti þegar fimm mínútur voru eftir og verkefni Íslands orðið erfitt. Frábær endurkoma íslendinganna sem hófst á frábæru vörðu skoti Bjarna Guðmanns en hann kallaði „burt með þetta“ eftir boltanum. Ísland jafnaði leikinn 69-69 þegar mínúta var eftir og stemmningin virtist þeirra megin. Leikmaður Finnlands tók hálf fáránlegt þriggja stiga skot þegar 20 sekúndur voru eftir og laug boltann hreinlega ofaní. Þetta ótrúlega skot kláraði leikinn fyrir Finnland sem vann að lokum 69-74 sigur á Íslandi. 

 

Leikmaður leiksins: 

 

Bjarni Guðmann Jónsson var öflugasti leikmaður Íslands í dag. Hann barðist allan leikinn og mikill munur var á frammistöðu Íslands með hann á velinum og án hans. Bjarni endaði með 11 stig, 6 fráköst, 3 stolna bolta og 50 % skotnýtingu. Hann var allt í öllu í endurkomu Íslands í leiknum og öskraði sína menn áfram. 

 

Kjarninn: 

 

Það má segja að Ísland hafi verið nokkrir klaufar að tapa þessum leik. Þeir voru sterkari aðilinn framan af en vondar ákvarðanatökur í lokin kostuðu sigurinn. Auk þess sem verulega döpur vítanýting reyndist rándýr. Liðið hitti úr fjórtán af þrjátíu vítaskotum sínum, það svíður verulega í fimm stiga tapi. 

 

Leikmenn sýndu flotta baráttu í erfiðri stöðu. Leikurinn var að renna frá þeim í fjórða leikhluta en stemmnings og baráttu endurkoma kom þessu aftur í leikinn. Íslenska liðinu tókst aftur á móti ekki að fylgja því eftir og klára leikinn. Framundan er leikur gegn Noregi á morgun, það lið kom á óvart og vann frábæran sigur á Svíþjóð fyrr í dag. Því er von á skemmtilegum leik á milli liðanna á morgun. 

 

Tölfræði leiksins

Myndasafn 

 

Viðtöl eftir leik: (Væntanleg)

 

Umfjöllun / Ólafur Þór Jónsson

Viðtöl og myndir / Davíð Eldur

Fréttir
- Auglýsing -