Fyrsta leikdegi er lokið af Norðurlandamóti yngri flokka sem fram fer í Finnlandi þessa dagana. Lífið í Kisakallion er fínt fyrir utan sólar- og sigurleysi. Hér lifa allir og hrærast í körfubolta þessa dagana og því ekki hægt að kvarta.
Með í för eru einnig fimm íslenskir dómarar sem dæma leikina sem hafa dæmt af stakri snilld í dag. Íslensku leikirnir voru allir fyrri part dags og þrátt fyrir að allir leikir hafa tapast er gleðin alveg með í för. Einhverjir eru hinsvegar enn að jafna sig á því að engin súkkulaði mús var í boði með kvöldmatnum. Hvað sem því veldur þá eru finnsku liðin í ár ógnarsterk og hreinlega of stór biti fyrir Ísland í dag.
Karfan.is hefur verið á staðnum á öllum leikjum dagsins og má finna allt efni dagsins hér að neðan:
U16 stúlkna:
Umfjöllun: Tapaðir boltar dýrir fyrir U16 stúlkna
Viðtal: Ásta Júlía Grímsdóttir, leikmaður.
Viðtal: Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari.
U16 drengja:
Umfjöllun: Undir 16 ára lið drengja tapaði fyrir Finnlandi
Viðtal: Veigar Áki Hlynsson, leikmaður.
Viðtal: Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari.
U18 stúlkna:
Umfjöllun: Undir 18 ára lið stúlkna laut í lægra haldi fyrir Finnlandi
Viðtal: Sævaldur Bjarnason, aðstoðarþjálfari.
Viðtal: Birna Valgerður Benónýsdóttir, leikmaður.
U18 drengja:
Umfjöllun: Tap U18 drengja gegn Finnlandi eftir æsispennandi lokamínútur
Viðtal: Bjarni Guðmann Jónsson, leikmaður.
Viðtal: Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari.




