spot_img
HomeFréttirÍsland á leið í átta liða úrslit eftir sigur á Svíþjóð

Ísland á leið í átta liða úrslit eftir sigur á Svíþjóð

Íslenska U20 landsliðið í körfubolta hefur tryggt sæti sitt í átta liða úrslitum A-deildar evrópumótsins. Það gerði liðið með mögnuðum sigri á Svíþjóð í sextán liða úrslitum mótsins. 

 

Ísland byrjaði leikinn mjög illa en eins og áður kom liðið til baka og náði 38-8 áhlaupi fyrir hálfleikinn. Liðið bætti svo í muninn í seinni hálfleik sem má helst þakka stórkostlegum varnarleik íslenska liðsins. 

 

Andstæðingar Íslands í átta liða úrslitum verða Ísrael eða Ítalía en sá leikur fer fram síðar í dag. Ísland lék við bæði liðin í undirbúningi fyrir þetta aðalmót. 

 

Frekari umfjöllun, myndir og viðtöl úr þessum sögulega leik koma síðar í dag. 

Úrslit dagsins:

 

Ísland 73-39 Svíþjóð

Fréttir
- Auglýsing -