Undir 18 ára lið drengja leikur þessa dagana á Evrópumóti í Tallinn í Eistlandi. Í dag sigruðu þeir fyrsta leik sinn gegn Georgíu með 92 stigum gegn 79.
Ísland var í bílstjórasætinu í fyrri hálfleik leiksins, Georgíumenn þó aldrei langt undan. Eftir fyrsta leiddi Ísland með 4 stigum 24-20. Þegar að liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik var munurinn kominn í 12 stig, 48-36.
Ísland leiddi áfram í seinni hálfleiknum, en eftir þrjá leikhluta voru þeir 10 stigum yfir, 66-56, áður en þeir svo sigldu góðum 13 stiga sigri í höfn 92-79.
Atkvæðamestur í íslenska liðinu var Bjarni Guðmann Jónsson með 13 stig, 8 fráköst og 4 stoðsendingar.
Næsti leikur liðsins er gegn Búlgaríu á morgun kl. 10:45 en hægt verður að horfa á hann í beinni útsendingu hér.
Hérna er leikur dagsins:




