HomeFréttirDarri yfirgefur KR eftir tímabilið

Darri yfirgefur KR eftir tímabilið

Darri Hilmarsson leikmaður KR mun flytja til Svíþjóðar að loknu tímabili og er því að leika sína síðustu leiki fyrir Íslandsmeistarana þessa úrslitakeppnina. Þetta staðfestir Darri í viðtali við tímarit Körfuknattleiksdeildar KR sem kom út í dag. 

 

Kona Darra er á leið í sérnám í Svíþjóð og mun hann flytja með henni þangað. Ferli hans hjá KR lýkur því í vor en hann segir í viðtalinu að það að spila með frábærum liðum og einstaklingum standi mest uppúr. 

 

KR hefur leik í úrslitakeppninni í kvöld þegar liðið mætir Njarðvík í átta liða úrslitum Dominos deildarinnar. Leikurinn hefst kl 19:15 í DHL-Höllinni en KR getur unnið fimmta Íslandsmeistaratitilinn í röð vinni þeir núna. 

 

Tímaritið KR Karfa má finna hér. Í blaðinu eru mörg áhugaverð viðtöl við leikmenn meistaraflokka félagsins og margt annað. 

Fréttir
- Auglýsing -