HomeFréttirÍR með fyrsta sigurinn í úrslitakeppni í sjö ár og er komið...

ÍR með fyrsta sigurinn í úrslitakeppni í sjö ár og er komið í forystu

Það var hátíð í bæ þegar fyrsti leikur úrslitakeppni Dominos deildar karla fór fram í Seljaskóla í kvöld. Úrslitakeppnisfnykurinn fannst langar leiðir en leggja þurfti langt frá skólanum og stemmningin gríðarleg.

 

Gestirnir voru Stjarnan en þessi sömu lið mættust einnig í átta liða úrslitum á síðasta tímabili. Þar vann Stjarnan 3-0 eftirminnilega og því harma að hefna fyrir ÍR. ÍR hafði ekki átt heimaleikjarétt í úrslitakeppninni frá því árið 1995 og því ansi langt síðan liðið var sigurstranglegra þegar það fer í seríu.

 

Gangur leiksins:

 

Ghetto hooligans, grillið á yfirvinnu, ljósashow og reykvél kalla einfaldalega á úrslitakeppni og var allt þetta á boðstólnum í Hertz hellinum í kvöld. Stuðningsmenn Stjörnunnar voru í algjörum minnihluta í Seljaskóla í dag enda langt ferðalag úr Garðabæ, eða ekki.

 

 

Þrátt fyrir það þar tilfinningin sú að Stjarnan væru reiðubúnari í upphafi leiks. Liðið fór í allar baráttur og náði í góð sóknarfráköst. Aftur á móti gátu Garðbæingar ekki logið boltann ofan í körfuna. Galopin skot Stjörnunnar fóru ekki ofan í á meðan ÍR var að sigla inn stigum í rólegheitunum. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 18-14 fyrir ÍR en það var ekki áferðafallegur körfuboltinn sem boðið var uppá.

 

 

ÍR áttu flottan annan leikhluta þar sem vörnin virtist vera að ná meira sjálfstrausti og auðveldar körfur eftir því. Stjarnan hitti ekkert fyrir utan þriggja stiga línuna og fór Darrell Combs að taka Stjörnugalin skot til að fá stemmninguna með sér en það gekk illa. Staðan í hálfleik var 39-31 og við tók ilvolgt Seljaskólakaffi og allir á því að seinni hálfleikurinn yrði ógnarspennandi.

 

Fyrrnefndur Combs var hinsvegar staðráðinn í því að svo myndi ekki verða. Hann kom inní seinni hálfleikinn með það að markmiði að gera sem mest sjálfur. Fyrir vikið komst sókn Stjörnunnar ekki í takt og ÍR virtist vera að ná allri stjórn á vellinum. Stjarnan náði þó að stjórna leik sínum betur þegar Róbert Sigurðsson tók upp boltann og var leikstjórnandi. ÍR leiddi fyrir lokafjórðunginn 59-49.

 

 

Stjarnan hótaði því reglulega í fjórða leikhluta að koma til baka og gera þetta að leik en áhlaup þeirra voru veik. ÍR gerði vel að ná stoppum þegar mikið var undir og setja svo góðar körfur hinu megin. Það fór þannig að lokum að ÍR vann 79-73 sigur á Stjörnunni og er komið í 1-0 forystu í einvíginu.

 

The Ryan Taylor Show:

 

Segja má að Ryan Taylor hafi tekið þennan leik algjörlega yfir í seinni hálfleik. Hann átti geggjaðan þriðja leikhluta sem hann kórónaði með magnaðri troðslu þar sem hann ýtti vörninni til líkt og jarðýta. Hann endaði með 32 stig, 9 fráköst en Stjarnan virtist einbeita sér meira af því að stöðva Matthías í pick og roll svo það losnaði full mikið um Taylor. Matthías átti einnig þrusuleik og var með 19 stig.

 

Kjarninn:

 

ÍR fer með forystuna eftir fyrsta leikinn gegn Stjörnunni og þessi gæti reynst ansi andlegur. Liðið lennti á algjörum vegg í fyrra gegn sama liði en tókst að koma til baka í dag. Ekki nóg með það heldur er þetta fyrsti sigur ÍR í úrsltakeppninni í sjö ár eða frá árinu 2011. Liðið gerði vel í dag að svara varnarafbrigðum Stjörnunnar, boltinn gekk vel og hreyfingin á liðinu var góð. Algjörlega verðskuldaður sigur ÍR í þessum leik sem halda áfram að komast yfir hindranir sem settar eru fyrir liðið.

 

Stjarnan getur verið nokkuð svekkt með sína frammistöðu í þessum leik. Skotin vildu alls ekki ofan í en liði tók nærri 20 fleiri skotum en ÍR í leiknum en nýtti það illa. Arnþór og Tómas Þórður hurfu því miður á stórum augnarblikum en liðið þarf mikið á þeim að halda. Hvað varðar Darrell Combs þá heillaði hann ekki marga i dag, hann átti afleiddan dag þrátt fyrir að ná 11 stigum. Ekkert boltaflæði var í kringum hann og hann virtist ekki í neinu synci við liðsfélaga sína. Á sama tíma átti Colin Pryor fínar innkomur og þá sérstaklega varnarlega.

 

Bjartasti punktur Stjörnunnar í kvöld var eins og svo oft áður Hlynur Bæringsson sem átti algjöran skrímsla leik í dag. Hann endaði með 15 stig, 22 fráköst og þar af 10 sóknarfráköst. Hann var gjörsamlega magnaður í allri baráttu en hann þarf mun meiri hjálp. 

 

 

Næsti leikur fer fram í mánudag í Ásgarði. Hrafn þjálfari Stjörnunnar þarf að hrófla nokkuð við sínum leik og finna önnur svör við samleik þeirra Matthíasar og Taylor. Borche þarf að skerpa á sínum mönnum sem áttu ekki fullkominn leik í dag. Næsti leikur gæti reynst mikilvægur í þessari seríu og því ansi áhugavert að fylgjast með þeim leik.  

 

Tölfræði leiksins

 

Myndasafn (Þorsteinn Eyþórsson)

 

Viðtöl eftir leik:

 

Fréttir
- Auglýsing -