Í kvöld mætast Haukar og Keflavík í fyrsta leik 8 liða úrslita Dominos deildarinnar.
Eftir deildarkeppnina enduðu Haukar uppi sem sigurvegarar með með 34 stig á meðan að Keflavík hefur átt misjöfnu gengi að fagna í vetur, enduðu í 8. sæti með 20.
Liðin hafa mættust í tvö skipti í vetur í deildinni. Fyrri leikinn sigraði Keflavík í DB Schenker Höllinni í Hafnarfirði með 3 stigum, en Haukar þann seinni í TM Höllinni í Keflavík með sama mun. Þá áttust þau einnig við í 8 liða úrslitum Maltbikarkeppninnar, en þann leik sigruðu Haukar með 9 stigum.
Karfan spjallaði við leikmann Hauka, Emil Barja, um tímabilið, úrslitakeppnina og áhrifin sem Kári Jónsson hefur haft á liðið í vetur.



