Haukarnir unnu í kvöld öruggan 11 stiga sigur á Keflvíkingum í fyrstu viðureign liðanna í 8 liða úrslitum Íslandsmótsins. Sigurinn hefði getað verið stærri en munurinn fór mest í 20 stig í síðari hálfleik þar sem Keflvíkingar ógnuðu heimamönnum aldrei af neinu viti. Vandræðagangur í sókninni og útreið í frákastabaráttunni reyndust banasár gestanna í kvöld.
Gangur leiksins
Haukarnir voru ekkert að tvínóna við hlutina og byrjuðu leikinn með þristaregni og frákastafrekju á báðum endum vallarins. Staðan orðin 13-4 eftir tæplega 6 mínúnta leik þar sem Kári Jónsson og Emil Barja voru að leika vel. Friðrik Ingi tók leikhlé fyrir Keflvíkinga sem voru bæði ískaldir fyrir utan þriggja stiga línuna og að kasta ítrekað frá sér boltanum. Ekki bætti úr skák þegar Guðmundur Jónsson fékk sína þriðju villu skömmu síðar. Haukarnir heyptu Keflvíkingum örlítið nær í sér í kjölfarið en kröftugur endir heimamanna keyrði muninn aftur upp í 9 stig. Kári klári krúsídúllu-keyrði upp að körfunni og fékk svo vítaskot í kaupbæti þegar 5 sekúndur lifðu á klukkunni. Staðan 24-15 eftir fyrsta fjórðung og Haukar í góðum fíling.
Leikurinn var í nokkru jafnvægi í öðrum leikhluta þar sem munurinn var á bilinu 9-13 stig og heimamenn alltaf 2 skrefum á undan. Sókn Keflvíkinga var ekki að fljóta nægilega vel þar sem ótímabær skot komu í veg fyrir að gestirnir næðu að binda saman vörn og sókn í tvígang og búa til alvöru áhlaup. Haukarnir virtust með Keflvíkinga í vasanum og voru að fá gott framlag frá bekknum og fór þar fremstur í flokki Haukur Óskarsson. Ekki amalegt að eiga einn slíkan til að kalla út. Þá var Emil Barja afar vel tengdur í fyrri hálfleiknum auk þess sem hann spilaði loftþétta vörn á Hörð Axel Vilhjálmssson sem þurfti að sætta sig við 2 stig á sinn reikning á fyrstu 20 mínútum leiksins. Það jákvæðasta í leik Keflvíkinga voru tilburðir Christian Dior Jones undir körfunni og góð innkoma Daða Lárs sem setti 3 þrista en aðrir leikmenn voru engan veginn tilbúnir til leiks. Staðan 44-31 þegar blásið var til hálfleiks.
Atkvæðamestir í hálfleik
Haukar
Haukur Óskarsson (14 stig af bekknum)
Emil Barja (10 stig, 7 frák/4 í sókn, 2 stoð)
Kári Jónsson (10 stig og 3 stoð)
Keflavík
Christian Dior Jones (12 stig, 7 frák – 3 stoð)
Daði Lár Jónsson (9 stig – 3/5 í 3ja)

Keflvíkingar stilltu upp svæðisvörn í þriðja leikhluta með ágætis árangri en hausverkur gestanna var þó mest áberandi sóknarmegin en leikmenn virtust varla þekkja til hvors annars og tilviljun ein réði því á löngum köflum hvort að Keflvíkingar uppskæru stig í sókn eða ekki. Vörnin var að halda nokkuð vel en allt flæði og leikgleði skorti. Sóknarleikur Haukana talsvert stirðari en í fyrri hálfleiknum og fengu gestirnir góð tækifæri til að koma muninum muninum niður fyrir 10 stigin án þess að nýta sér það. Haukarnir héldu 12 stiga forystu fyrir lokaleikhlutann. Staðan 56 – 44.
Keflvíkingar sýndu klærnar örlítið í upphafi 4. leikhluta muninum niður í 8 stig sem var það minnsta sem munað hafði á liðunum frá því snemma í 2. leikhluta. Það reyndist þó skammmvinnur vermir þar sem Haukarnir misstu aldrei augun af sigrinum og léku sér að gestunum undir vaskri stjórn Kára Jónssonar og Emil Barja sem áttu báðir glimrandi leik. Munurinn fór í 20 stig þegar mest lét og margir að koma að málum hjá heimamönnum sem sigldu að lokum öruggum sigri í höfn. Lokatölur í DB Schenker höllinni 83-72.
Atkvæðamestu menn
Haukar
Kári Jónsson (24 stig, 5 frák, 3 stoð)
Emil Barja (14 stig, 9 fráköst, 6 stoð)
Keflavík
Daði Lár Jónsson (20 stig, 4/6 í 3ja)
Christian Dior Jones (18 stig, 12 frák, 5 stoð)

Í hnotskurn
Haukarnir klára þennan leik í raun í fyrri hálfleik. Það var aldrei vafi hvorum megin sigurinn myndi enda þrátt fyrir að Keflavík hafi náð nokkrum stuttum rispum til að sjá glytta í ljósglætu í enda gangana. Haukarnir hefðu einfaldlega skrúfað upp gæðin og klárað þennan sama hvernig gestirnir hefðu spilað. Lykilmenn voru einfaldlega ekki með hjá Keflavík og alveg ljóst að Hörður Axel (6 stig), Magnús Trausta (3 stig) og Reggie Dupree (0 stig) komast ekki upp með að skila jafnlitlu og þeir gerðu í kvöld til að Keflavík vinni efsta lið deildarinnar í úrslitakeppni. Haukarnir spiluðu góða vörn lungan úr leiknum en eiga inni sóknarlega og það mun ásækja drauma Keflvíkinga fram að næsta leik.

Sterkur bekkur
Haukar fengu flott framlag frá þeim Hauki Óskarssyni, Breka Gylfasyni og Hjálmari Stefánssyni. Lið sem ætla sér að verða meistarar verða að vera með dýpt og þessir 3 gætu verið byrjunarliðsmenn í öllum liðum í deildinni en eiga hrós fyrir að vera þeir liðsmenn sem þeir eru. Toppeintök.
Þrátt fyrir það skorar Keflavíkurbekkurinn 37 stig á móti 32 hjá Haukum. Þegar 3 byrjunarliðsmenn skila ekki nema 9 stigum saman er fullmikið lagt á bekkinn að draga liðið að landi. Daði Lár gerði þó sitt besta með því að splæsa í 20 stig á 25 mínútum.

Hvar er fólkið?
Stuðningsmenn Keflvíkinga skiluðu góðu framlagi í kvöld, vel mannaðir og ólíkt þeim sem spiluðu leikinn fyrir þeirra hönd þá voru þeir tilbúnir í læti. Haukarnir voru líka nokkuð vel studdir á pöllunum en fá heil 3 mínusstig fyrir að fylla ekki húsið sín megin. Það er óráðin gáta hvers vegna Hafnfirðingar mæta ekki betur á heimaleik í úrslitakeppni þar sem þeir eru líklegastiraf öllum til að landa þeim stóra.
Framhaldið
Haukarnir fengu flugbeittan Kára Jónsson til baka eftir meiðsli og munar þar um minna. Hávaxinn leikmannahópur, djúpur bekkur og einn stöðugasti erlendi leikmaður deildarinnar gera Haukana ansi líklega til að fara alla leið í ár. Haukarnir eru að mínu mati með betra lið en þegar þeir fóru í úrslit á móti KR 2016, eru nýkringdir deildarmeistarar og eiga að klára neðsta liðið í úrslitakeppninni og munu gera það ef þeir sigra Keflvíkinga í leik 2 í Keflavík.
Umfjöllun / Sigurður Friðrik Gunnarsson
Myndir, viðtöl / Davíð Eldur
Viðtöl:



