Haukarnir unnu í kvöld öruggan 11 stiga sigur á Keflvíkingum í fyrstu viðureign liðanna í 8 liða úrslitum Íslandsmótsins. Sigurinn hefði getað verið stærri en munurinn fór mest í 20 stig í síðari hálfleik þar sem Keflvíkingar ógnuðu heimamönnum aldrei af neinu viti.
Karfan spjallaði við þjálfara Keflavíkur, Friðrik Inga Rúnarsson, eftir leik á Ásvöllum.



