Í kvöld tók Hamar á móti Snæfell í fyrsta leik úrslitakeppni karla. Hamar efstir af þeim liðum sem taka þátt í úrslitakeppni en Snæfell eru síðasta liðið til að komast í úrslitakeppnina og því eflaust margir sem gerðu ráð fyrir auðveldum leik hjá heimamönnum og þá sérstaklega þar sem Snæfell spilaði án erlends leikmanns í kvöld.
Hamarsmenn byrjuðu mun betur og seint i fyrsta leikhluta var kominn fimmtán stiga munur, Snæfell beit frá sér og fór með muninn aftur niður í tíu stig og allan annan leikhlutana voru liðin að skiptast á körfum þannig að munurinn hélst þetta tíu til fimmtán stig. Í byrjun seinni hálfleiks juku Hamarsmenn aftur við munin og fóru yfir tuttugustiga múrinn, Snæfell svaraði strax en eftir þetta var munurin þetta fimmtán til tuttugustig og einhvern veginn ekkert sem virtist benda til þess að Snæfell ætlaði að gera neina alvöru atlögu að Hamarsmönnum.
Það er hinsvegar eins og við manninn mælt að þegar fólkið í stúkunni er farið að telja þetta nokkuð öruggt þá breytast hlutirnir. Snæfell sótti á og skyndilega var munurinn komin niður fyrir tíu stiginn og gestirnir í bullandi sóknarhug. Á þessum tíma var hittni heimamanna lítil og einhvern vegin virtist allur leikur liðsins vera agalaus og hver að vinna í sínu horni. Þegar tvær mínútur voru eftir small þetta þó einhvernvegin og munurinn aftur kominn yfir tíu stiginn og ró kominn yfir Hamars drengi. Eftir þetta kláraðist leikurinn á teljandi láta og fyrsti sigurinn í einvíginu kominn í hús.
Fátt sem stendur eftir þegar horft er til baka yfir leikinn nema þó kannski að þjálfri Snæfell virðist hafa ótrúlegt leyfi til að mótmæla og gagnrýna dómgæslu. Dæmd var tæknivilla á þjálfarann um miðbik leiks og honum veitar munnlegar aðvaranir sem þýddi að hann slakaði aðeins á mótmælum við tvo eldri dómara leiksins en merkilegt nokk þá virtist sem að í hvert einasta skipti sem yngsti dómarinn af þríeykinu var staðsettur fyrir framan varamanna bekk Snæfells þá talaði þjálfarinn allan tímann í hnakkan á dómaranum, ótúrlegt að komast upp með svo mikil mótmæli. Verður þó að segja honum til “hróss“ að hann virðist vera búin að ná góðum tökum á því hvernig hægt er að mótmæla stöðugt án þess að fá tæknivillu tvö.
Lítið annað um frekar rislítinn leik í Frystikistunnu í kvöld en verður vonandi bara meira spennandi næst.
Umfjöllun / Daði Steinn Arnarsson




