HomeFréttirTindastóll þurfti framlengingu til að verja heimavöllinn

Tindastóll þurfti framlengingu til að verja heimavöllinn

Tindastóll vann gríðarlega mikilvægan sigur í fyrsta leik úrslitaeinvígisins við Grindavík eftir framlengdan naglbít í Síkinu í kvöld.

 

Það var rafmagnað andrúmsloft í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld þegar Tindastóll tók á móti Grindavík í fyrsta leik liðanna í þriðja og sjötta sæti Dominos deildarinnar í kvöld.

 

Leikurinn byrjaði á óhefðbundinn hátt má segja þegar Óli Óla fékk óíþróttamannslega villu fyrir að slá í fót Arnars Björnssonar í þriggja stiga skoti.  Arnar setti vítin og Hester tók eina létta troðslu í kjölfarið og heimamenn komnir í 5-0.  Tindastóll hélt frumkvæðinu fram í annan leikhluta og náðu mest 10 stiga forskoti um miðbik annars leikhluta. Þá sögðu gulir hingað og ekki lengra og náðu 16-5 kafla og komust yfir á lokasekúndu fyrri hálfleiks 43-44 eftir skelfileg mistök hjá Davenport. Allt í járnum og Síkið kraumaði.

Grindvíkingar komu svo sterkari inn í seinni hálfleikinn og voru með 5 stiga forystu eftir 3ja leikhluta 56-61.  Þeir voru að spila fantagóða vörn og ýttu heimamönnum útúr sínum aðgerðum hvað eftir annað.

 

Gestirnir naðu 8 stiga forystu þegar 7 mínútur voru eftir og farið að fara um heimamenn á pöllunum. Sigurður Þorsteinsson fór mikinn undir körfunni og var að gefa sínum mönnum aukastyrk með sterkum sóknarfráköstum.  Arnar Björnsson og Hester nöguðu niður forskotið og Arnar jafnaði með þrist þegar um fjórar og hálf var eftir, eftir 3 sóknarfráköst heimamanna. Baráttan í algleymingi. Hester átti svo næstu 6 stig heimamanna og þar af eina tröllatroðslu eftir að hafa stolið boltanum.  Heimamenn voru að klikka aðeins á vítum og Dagur Kár setti tvo risaþrista á lokamínútunni og kom gestunum í 78-81 þegar 19 sekúndur voru eftir.  Grindvíkingar brutu svo strax á Pétri Rúnari, vitandi það að Tindastóll þurfti 3 stig til að jafna.  Pétur hitti úr fyrra vítinu en klikkaði á því síðara og Hannes Ingi Másson tók sóknarfrákastið og komst í opinn þrist til að tryggja sigurinn.  Hannes geigaði en minnsti maður vallarins kom þá siglandi inn í teiginn og skoraði með tap-in þegar 14 sekúndur voru eftir.  Grindavík setti upp lokasóknina og Jóhann Árni fékk opið skot en klikkaði og leikurinn fór í framlengingu.

Arnar og Hester sáu svo að mestu um sóknarleik heimamanna í framlengingunni og Grindavík réð illa við vagg og veltu þeirra félaga.  Tindastóll hélt áfram að taka sóknarfráköst og eftir eitt slíkt setti Hester risaþrist þegar hálf mínúta var eftir, 95-92 fyrir Tindastól.  Jóhann Árni klikkaði svo á skoti í næstu sókn og Arnar gulltryggði sigurinn af vítalínunni.

*Þáttaskil:*

Mjög jafn leikur tveggja sterkra liða og sigurinn hefði getað lent hvoru megin sem var í kvöld.

*Tölfræðin lýgur ekki:*

Jafn leikur og það sást á tölfræðinni.

*Hetjan: *

Antonio Hester fór hamförum á parketinu í kvöld og Arnar Björnsson tryggði framlenginguna með ótrúlegu tap-in eftir sóknarfrákast.  Saman skiluðu þeir félagar 57 stigum og Pétur Rúnar átti jafnframt frábæran leik með 18 stig, 11 fráköst og 7 stoðsendingar.  Hjá gestunum var Dagur Kár í stuði og Siggi Þorsteins reif niður 14 fráköst.  Lítið fór hinsvegar fyrir Óla Óla sem setti einungis 4 stig en hann spilaði fantavörn eins og alltaf.

*Kjarninn: *

Tindastóll náði að verja heimavöllinn en tæpt var það

 

Tölfræði leiksins

Myndasafn (Væntanlegt)

 

Viðtöl eftir leik: 

 

Mynd: Arnar Björnsson var góður í kvöld.

 

Umfjöllun:  Hjalti Árnason

Fréttir
- Auglýsing -