Lykilleikmaður 25. umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður Hauka, Helena Sverrisdóttir. Í sigri liðsins á Val sem tryggði þeim deildarmeistaratitilinn skilaði Helena laglegri þrennu. Skoraði 16 stig, tók 20 fráköst, gaf 11 stoðsendingar og stal 2 boltum.
Aðrar tilnefndar voru leikmaður Keflavíkur, Brittanny Dinkins, leikmaður Skallagríms, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og leikmaður Snæfells, Kristen McCarthy.
Lykilleikmaður 25. umferðar Dominos deildar kvenna? #Korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) March 14, 2018



