Breiðablik heimsótti Hauka í dag þar sem heimakonur áttu að leik loknum að lyfta deildarmeistaratitlinum. Breiðablik náðu í nokkuð óvæntan sigur á deildarmeisturunum og skemmdu því sigurhátíð Hauka.
Umfjöllun um helstu þætti leiksins hér að neðan:
Gangur leiksins:
Ljóst var fyrir leik að deildarmeistarabikarinn færi í loft hjá Haukum alveg sama hvernig færi í leiknum. Haukar voru samt greinilega ákveðnar í upphafi leiks að láta það ekki trufla sig í leikunum. Því þær náðu algjörum undirtökum snemma í leiknum. Staðan eftir átta mínútna leikvar 26-6 fyrir Haukum sem lokuðu á allar aðgerðir Blika.
Breiðablik sýndi hinsvegar frábæra baráttu þegar liðið kom til baka í öðrum leikhluta og saxaði rækilega á Hauka. Þegar liðin héldu til hálfleik höfðu Blikar minnkað muninn niður í sex stig 42-36.
Liðin voru hnífjöfn í þriðja leikhluta og mátti litlu greina lítinn muná milli. Breiðablik náði að koma muninum minnst niður í tvö stig í leikhlutanum. Helena Sverrisdóttir og Ísabella Ósk skullu harkalega saman um miðjan leikhlutann og munaði miklu um þær báðar fyrir sín lið.
Mikil spenna var í fjórða leikhluta og komst Breiðablik yfir í fyrsta skipti í leiknum eftir þriggja stiga körfu frá Birgit Ósk. Breiðablik var sterkari aðilinn og eftir æsilegar lokamínútur voru það gestirnir sem höfðu sigur 79-82.
Hetjan:
Whitney Knight átti alveg geggjaðan leik, setti 36 stig, 11 fráköst og 5 varða bolta. Hún gat náð í körfu þegar hún vildi og átti stóran þátt í þessum sigri. Taka verður fram þátt Birgit Óskar Snorradóttur sem var með 0,6 stig að meðaltali í leik fyrir þennan en steig heldur betur upp í leiknum. Setti risastór skot í fjórða leikhluta og setti 10 stig, algjör lykilleikmaður í þessum leik.
Skellurinn:
Það var ansi ljótt atvik sem átti sér stað í þriðja leikhluta þegar Helena Sverrisdóttir og Ísabella Ósk Sigurðardóttir skullu saman á miðjum vellinum. Helena fékk greinilega högg á nefið og skurð. Hún fór á sjúkrahús til aðhlynningar. Ísabella fékk högg á höfuð en hvorug þeirra lék meira í leiknum eftir atvikið.
Kjarninn:
Breiðablik setti smá strik í sigurhátíð Hauka sem lyftu titlinum að leik loknum. Eftir dapra byrjun tókst blikum að koma til baka. Blikar höfðu trú á sínu leikplani og tókst að komast inní leikinn á því. Mikill liðs- og vinnusigur Breiðabliks.
Breiðablik á ekki möguleika á sæti í úrslitakeppninni þetta árið en mega heldur betur vel við una við frammistöðu sína í dag. Liðið var tilbúið að skilja allt eftir á vellinum og þá sérstaklega eftir fyrsta leikhluta.
Úrslitin skipta engu fyrir Hauka en litlu munaði að þetta hefði orðið rándýr leikur fyrir liðið. Helena fékk högg og enn er óljóst hvers eðlis þau meiðsli eru. Auk þess meiddist Þóra Kristín á hné en hún var borin útaf og segja má að meiðsli hennar hafi litið ansi illa út. Hún kom þó aftur inná og því virðist hafa verið betur en á horfðist.
Að loknum leik lyftu Haukar deildarmeistaratitlinum og gefa því farið að einbeita sér að úrslitakeppninni.
Viðtöl eftir leik:




