Það var ansi ljótt atvik sem átti sér stað í þriðja leikhluta leiks Hauka og Breiðabliks í Dominos deild kvenna þegar Helena Sverrisdóttir og Ísabella Ósk Sigurðardóttir skullu saman á miðjum vellinum. Helena fékk greinilega högg á nefið og skurð.
Helena fór á sjúkrahús til aðhlynningar þar sem lokað var fyrir skurð við nefið og það skoðað. Ísabella fékk högg á höfuð en hvorug þeirra lék meira í leiknum eftir atvikið. Karfan.is ræddi við Ingvar Þór eftir leik um líðan Helenu þar sem hann vonaði að meiðslin væru ekki eins alvarleg og þau litu út.
„Á tímabili í leiknum höfðum við meiri áhyggjur af meiðslum Helenu en úrslitunum. Helena verður vonandi í góðu standi, hún er uppá sjúkrahúsi að láta loka skurðinum á nefinu og láta kíkja á það. Vona að það hafi ekki verið meira höfuðhögg en það, það á eftir að koma í ljós.“ sagði Ingvar og bætti við.
„Það er verið að kíkja á nefið á henni. Gæti alveg verið að það sé brotið en það er óljóst. Ég hætti í læknisfræði eftir þrjú ár svo ég get ekki alveg metið það.“ sagði Ingvar svo og glotti.
Tvær umferðir eru eftir af Dominos deild kvenna en Haukar hafa nú þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Vonandi fyrir Helenu og Hauka er ekki um brot að ræða en Karfna.is mun fylgja því eftir á næstu dögum.




