Veislan heldur áfram í kvöld þegar leikir tvö í átta liða úrslitum Dominos deildar karla fara fram. Tveir leikir eru í kvöld og seinni tveir annað kvöld.
Í Njarðvík mætir KR í heimsókn eftir að hafa unnið ansi sannfærandi sigur á sínum heimavelli í fyrsta leiknum. Liðin hafa oft mæst í úrslitakeppninni og er ljóst að það er erfitt að mæta Njarðvík í Ljónagryfjunni. Í síðustu tvö skipti sem liðin mættust í úrslitakeppninni hafa Njarðvíkingar alltaf unnið sinn fyrsta heimaleik og spurning hvort sú hefð haldi í kvöld?
Stjarnan fær ÍR í heimsókn í Ásgarð en breiðhyltingar náðu forystu í einvíginu með sigri í Breiðholtinu. Sömu lið mættust í átta liða úrslitum í fyrra og þá unnu Stjörnumenn báða heimaleikina. Stjörnumenn mæta væntanlega dýrvitlausir til leiks en auk þess að tapa í fyrsta leiknum þá beið þeirra ekki fögur sjón inní búningsklefa eftir leik. Því óprúttinn aðili hafði brotist inní klefa Stjörnunnar í Hertz-hellinum og látið öllum illum látum.
Hvernig fer Njarðvík – KR – leikur 2? #korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) March 19, 2018
Hvernig fer Stjarnan – ÍR? #korfubolt
— Karfan.is (@Karfan_is) March 19, 2018
Fjallað verður um leiki dagsins í kvöld á Karfan.is.
Leikir dagsins:
Dominos deild karla – Átta liða úrslit:
Stjarnan – ÍR – kl. 19:15 (Staðan í einvíginu ÍR 1-0 Stjarnan)
Njarðvík – KR – kl. 19:15 í beinni á Stöð 2 Sport (Staðan í einvíginu KR 1-0 Njarðvík)
Úrslitakeppni 1. deildar karla:
Snæfell – Hamar – kl. 19:15 (Staðan í einvíginu Hamar 1-0 Snæfell)




