Annar leikur Breiðabliks og Vestra í undanúrslitaeinvígi um laust sæti í efstu deild karla fór fram á Ísafirði í kvöld. Leikurinn var æsispennandi og réðst á lokasprettinum.
Eftir að Vestri hafði haft yfirhöndina í fyrri hálfleik mættu Blikar mun sterkari í seinni hálfleik og tókst að gera þetta að miklum spennuleik í lokin.
Það fór svo að Breiðablik komst í forystu þegar ein mínúta var eftir og var það í fyrsta skipti í leiknum sem gestirnir leiddu síðan á upphafsmínútunum. Vestri gerði illa að klára sóknir sínar en Cristopher Woods setti stórar körfur í lokin fyrir Breiðablik. Það má því segja að Breiðablik hafi bókstaflega stolið sigrinum í lokin en lokastaðan var 66-72 fyrir Breiðablik.
Breiðablik er þar með komið í 2-0 stöðu í einvíginu og getur tryggt sig í úrslitaeinvígið með sigri í næsta leik sem fram fer á fimmtudaginn í Smáranum.
Tölfræði leiksins:
Vestri-Breiðablik 66-72 (19-10, 21-17, 11-25, 15-20)
Vestri: Ágúst Angantýsson 20/14 fráköst, Ingimar Aron Baldursson 18/5 fráköst, Nebojsa Knezevic 13/13 fráköst/6 sto?sendingar, Nökkvi Har?arson 8/4 fráköst, Björn Ásgeir Ásgeirsson 7, Adam Smari Olafsson 0/4 fráköst, Gunnlaugur Gunnlaugsson 0, Rúnar Ingi Gu?mundsson 0, Egill Fjölnisson 0, Hugi Hallgrímsson 0, Helgi Snær Bergsteinsson 0, Hilmir Hallgrímsson 0.
Brei?ablik: Christopher Woods 22/15 fráköst, Árni Elmar Hrafnsson 18/5 sto?sendingar, Sveinbjörn Jóhannesson 13/6 fráköst, Snorri Vignisson 9/7 fráköst, Erlendur Ágúst Stefánsson 6, Jeremy Herbert Smith 4, Halldór Halldórsson 0/4 fráköst, Hafþór Sigur?arson 0, Orri Hilmarsson 0, Þröstur Kristinsson 0, Matthías Örn Karelsson 0, Ragnar Jósef Ragnarsson 0.
Viðtöl eftir leik frá Jakinn TV:




