Martin Hermannsson leikmaður Chalons-Reims átti frábæran leik fyrir liðið í naumu tapi gegn toppliði frönsku úrvalsdeildarinnar Le Mans.
Martin setti 20 stig og þrjár stoðsendingar á 31 mínútu í leiknum. Hann hitti frábærlega í leiknum eða úr átta af ellefu skotum sínum. Leikurinn var æsispennandi en Le Mans tryggði sigur í blálokin.
Charlon-Reims er í fjórtánda sæti Pro A deildarinnar eftir 24 umferðir og orðið ansi langsótt að liðið nái í úrslitakeppni. Le Mans eru í öðru sæti, í mikilli baráttu við Monaco um toppsætið og eru liðin jöfn að stigum núna en Monaco á leik inni.
Haukur Helgi Pálsson og félagar í Cholet mæta Levallois annað kvöld en þeir eru í þrettánda sæti deildarinnar. Það eru tíu leikir eftir í deildinni eftir þessa leiki, því nóg eftir og stutt á milli liða.
Martin Hermannsson @hermannsson15 scored 21 points on 8/11 FG for @CCRBASKET adding 3 assists and 6 fouls won against @MSB_Officiel in @LNBofficiel @TangramSports
— Christos Lazarou (@ChristosLazarou) March 19, 2018




