Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Í Moda Center í Portland sigruðu gestirnir í Houston Rockets heimamenn í toppslag næturinnar. Verðandi besti leikmaður deildarinnar, James Harden, lék á alls oddi fyrir Rockets, skoraði 42 stig, tók 6 stig og gaf 7 stoðsendingar. Þá bætti liðsfélagi hans Chris Paul við 22 stigum, 8 fráköstum og 6 stoðsendingum. Fyrir heimamenn í Trail Blazers var það Jusuf Nurkic sem dróg vagninn með 21 stigi og 11 fráköstum.
in hell you play James Harden 1-on-1 and he calls his own fouls
— Dane Carbaugh (@danecarbaugh) March 21, 2018
Í TD Garden í Boston sigruðu heimamenn í Celtics lið Oklahoma City Thunder í spennandi leik. Leikmaður Thunder, Carmelo Anthony, fékk tvö víti rétt fyrir lok leiksins til þess að klára hann, en klikkaði á báðum. Úr varð að Mrcus Morris setti niður þriggja stiga skot á hinum enda vallarins og Celtics sigruðu með 1 stigi. Brot úr leiknum er að finna hér fyrir neðan.
Toronto Raptors 93 – 86 Orlando Magic
Oklahoma City Thunder 99 – 100 Boston Celtics
LA Clippers 109 – 123 Minnesota Timberwolves
Dallas Mavericks 105 – 115 New Orleans Pelicans
Atlanta Hawks 99 – 94 Utah Jazz
Detroit Pistons 115 – 88 Phoenix Suns
Houston Rockets 115 – 111 Portland Trail Blazers



