Njarðvíkingar komu í DHL höllina í kvöld 2-0 undir og með bakið upp við vegg. Staðan einföld fyrir gestaliðið, sigur eða sumarfrí. KR ingar hins vegar höfðu engan áhuga á því að lengja tímabil Njarðvíkinga og unnu 10 stiga sigur eftir hörkuleik sem var jafnari en lokatölurnar gefa til kynna. Þar með eru Njarðvíkingar fallnir úr leik en KR komið í undanúrslit íslandsmótsins.
Karfan spjallaði við leikmann Njarðvíkur, Loga Gunnarsson, um leikina þrjá, tímabilið og framhaldið.



