Verja Valskonur Íslandsmeistaratitilinn? Það er svosem aldrei að vita. Einhverja tölfræði er mögulega hægt að fá út úr stöðu liða yfir áramótin. 5 lið af 10 sem hafa verið á toppi deildarinnar yfir hátíðarnar síðustu ár hafa náð að klára tímabilið með sigri á þeim stóra, eða 50%.
Það er því spurning hvoru megin Valur lendir þetta árið. En liðið er sem stendur á toppi deildarinnar eftir 13 umferðir með 11 sigurleiki og 2 töp, einum sigurleik á undan Keflavík og KR sem eru í 2.-3. sætinu.
2009-2010
Efsta lið deildar um jól KR
Íslandsmeistarar KR
2010-2011
Efsta lið deildar um jól Hamar
Íslandsmeistarar Keflavík
2011-2012
Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar Njarðvík
2012-2013
Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar Keflavík
2013-2014
Efsta lið deildar um jól Snæfell
Íslandsmeistarar Snæfell
2014-2015
Efsta lið deildar um jól Snæfell
Íslandsmeistarar Snæfell
2015-2016
Efsta lið deildar um jól Haukar
Íslandsmeistarar Snæfell
2016-2017
Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar Keflavík
2017-2018
Efsta lið deildar um jól Valur
Íslandsmeistarar Haukar
2018-2019
Efsta lið deildar um jól Keflavík
Íslandsmeistarar Valur
2019-2020
Efsta lið deildar um jól Valur
Íslandsmeistarar ???



