Lykilleikmaður 12. umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður Vals, Kiana Johnson.
Í nokkuð öruggum sigri Íslandsmeistaranna á Breiðblik í Origo Höllinni var Johnson besti leikmaður vallarins. Á tæpum 36 mínútum spiluðum skilaði hún 32 stigum, 10 fráköstum, 4 stoðsendingum og 3 stolnum boltum. Þá var skotnýting hennar í leiknum til fyrirmyndar, 11 af 14 fyrir innan þriggja stiga línuna.

- umferð – Kiana Johnson (Valur)
- umferð – Daniela Wallen Morillo (Keflavík)
- umferð – Þóra Kristín Jónsdóttir (Haukar)
- umferð – Kiana Johnson (Valur)
- umferð – Emelie Sofie Hesseldal (Skallagrímur)
- umferð – Sanja Orazovic (KR)
- umferð – Daniela Wallen Morillo (Keflavík)
- umferð – Emelie Sofie Hesseldal (Skallagrímur)
- umferð – Kiana Johnson (Valur)
- umferð – Daniela Wallen Morillo (Keflavík)
- umferð – Gunnhildur Gunnarsdóttir (Snæfell)
- umferð – Kiana Johnson (Valur)



