spot_img
HomeFréttirPollamóti Þórs í körfuknattleik frestað til 21. nóvember

Pollamóti Þórs í körfuknattleik frestað til 21. nóvember

Pollamóti Þórs hefur verið frestað til laugardagsins 21. nóvember næstkomandi vegna hertra sóttvarnarráðstafana. Upphaflega átti það að fara fram 24. október, en norðanmenn eru ekki bjartsýnir á að samkomuráðstafanir verði rýmkaðar nóg fyrir þann tíma. Tilkynningu forsvarsmanna má lesa hér fyrir neðan.

Tilkynning Þórs:

Heil og sæl

Í ljósi hertra sóttvarnarráðstafanna neyðist mótsnefnd til þess að fresta Pollamóti Þórs í körfuknattleik til laugardagsins 21. nóvember. Okkur þykir þetta mjög miður en það er einfaldlega ekki hægt að halda Pollamótið miðað við núverandi reglur. Líkurnar á því að reglurnar verði í rýmkaðar nægjanlega mikið fyrir laugardaginn 24. október eru litlar sem engar. Það þýðir hins vegar ekkert að gráta Björn bónda heldur fylkja liði . . . á Pollamót Þórs í körfuknattleik laugardaginn 21. nóvember í Íþróttahöllinni á Akureyri. Skráning hefur verið mjög góð og það stefnir í gríðarlega flott mót. Áfram gakk!

Körfuboltakveðja, mótsnefnd.

Fréttir
- Auglýsing -