Nú er komið í loftið fantasy leikur fyrir íslensku körfuna. Leikurinn byggir á grunni sama leiks og var í boði fyrir karladeildina í fyrra. Leikurinn sem heitir Troðslan er þróaður og rekinn af hugbúnaðarfyrirtækinu 0101 og er í samstarfi við Domino’s á Íslandi.
Troðslan verður í boði fyrir bæði karla og kvennadeild. Þar sem breytingar hafa verið í gangi hjá gagnaveitum sem snúa að íslensku körfunni náðist ekki í tæka tíð að koma leiknum upp kvenna megin, en það verður opnað fyrir skráningar á allra næstu dögum.
Leikurinn snýst um það að velja sitt lið sem samanstendur af 8 leikmönnum.
· 3 bakverðir
· 2 framherjar
· 1 miðherji
· 2 í hvaða stöðu sem er og þeir leikmenn eru jafnframt varamenn.
Leikmenn safna stigum eftir tölfræðinni sem þeir skila, varamenn telja aðeins til skila ef einhver af byrjunarliði spilar ekki.
| Skorað stig | 1 | Stolinn bolti | 2 |
| 3stiga karfa | 0,5 | Tapaður bolti | -0,5 |
| Frákast | 1,25 | Tvöföld tvenna | 2 |
| Stoðsending | 1,5 | Þreföld tvenna | 5 |
| Varið Skot | 2 |
Domino’s gefur vinninga í hverri umferð fyrir stigahæstu liðin. Vertu með á Troðslan.is



